Fósturlandsins freyja...

Halldóra Kristín

17.01.2007 11:14:10 / halldorak

Bloggar.is

Ég ætla aðeins að gefa þessari síðu frí og er búin að gera nýja síðu, endilega kíkið á hana.

halldorakristin.bloggar.is


-Halldóra Kristín

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 15:26:37 / halldorak

Skókaup

Ahh jólafríið er fullkomnað, ég keypti mér æðislega skó í gær :D Svarta, leður ökklaskó...ummm...næs

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 23:14:57 / halldorak

Gleðileg Jól

Ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári, þakka allt gamalt og gott og hlakka til þess sem koma skal.

kv. Halldóra Kristín

p.s. það eru komnar inn nokkrar myndir frá Kúbu, eða um 1/3 af þeim sem við tókum kemur meira síðar.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 02:29:01 / halldorak

Kuba er klarlega malid!

Maeli eindregid med thessu, buid ad vera yndislegt hja okkur stollum. Forum til Havana i gaer og i jeppasafari i dag, badar ferdirnar voru snilld. Skelli inn myndum um leid og eg kem heim -Adios

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 14:18:46 / halldorak

Ég held að Kúba sé málið...

Nú er það ljóst við Hulda höfum misst okkur í draumórum og á laugardaginn næstkomandi ætlum við stöllur að skella okkur til Kúbú í viku fyrir jólin....sweet...

læra að dansa

og skjótast aðeins á ströndina

-Sólar Halldóra
 

» 8 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 14:48:35 / halldorak

Rauð eða hvít?

Hvað heldur fólk, verða rauð- eða hvít jól ?


Þetta er uppáhaldsmyndin mín þessa dagana, tekin 2003 á Laugabóli
Endilega kommentið, svo ég viti hverjir eru að kíkja hérna inn og hvaða skoðun þið hafið á þessu máli.
-Jóla Halldóra


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 15:12:38 / halldorak

Jólaskapið...

Er fólk ekki komið í jólaskap... hérna má heyra White-trash útgáfu af nokkrum þekktum jólalögum, flutt af Larry the Cabel guy.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 10:30:15 / halldorak

Langar þig að hlæja ?

Hún Vala Matt mætti í Ísland í Bítíð í morgun og þá hafði hún skellt sér í vítamínalesningu hjá Hómópata, endilega horfið á þetta og ef einhver skilur eitthvað í þessu ,,vælu" tæki endilega útskýrið það fyrir mér.

Myndbandið!


1) hvaða taug er hún að finna ? er það bæði skyn- og hreyfitaug ?
2) Hvað er ampúlla ?
3) afhverju heldur hún á málmstykki í hinni höndinni, þó það sé ekki að gefa frá sér neitt.
4) afhverju þarf þetta tæki að gefa frá sér þetta hræðilega hljóð ?
5) Er bara eitt B-vítamín í hennar heimi ?
6) Hvaða eiginleika Lýsis er hún að mæla með því að setja það í staup glas og í þessa grind ?

Ég sver það, allt er nú til!

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 19:37:34 / halldorak

Á dauða mínum átti ......

Margir hafa eflaust heyrt söguna af gömlu konunni sem var nýbúin að fá örbylgjuofn. Hún var vön að ylja kettinum sínum í bakarofninum þegar hann kom inn úr kuldanum, og fannst alveg grá upplagt að nota þetta nýja undratæki til að hlýja kisa litla. Það fór nú ekki betur en svo að kattar greyið sprakk. Þess vegna stendur í bæklingum með örbylgjuofnum að það megi ekki setja í þá gæludýr.


Ég gæti hugsanlega trúað því að einhver sé svo grandalaus að setja gæludýr í örbylgjuofn og þá sérstaklega þegar þeir voru nýjir á markaðnum.

En þetta ,,Bandarísk kona talin hafa myrt barn sitt í örbylgjuofni" datt mér aldrei í hug að ég myndi sjá. Þetta er það hrottalegast sem ég hef nokkurn tíma heyrt, séð, lesið. :whut: Maður verður hissa, sorgmæddur og svo reiður! Ég vona svo innilega að þetta sé ekki satt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.11.2006 16:59:25 / halldorak

Alvara lífsins...

Eðlisfræði prófið gekk bara mjög vel, vonandi ganga hin prófin eins vel :|
Strax eftir eðlisfræði prófið var hafist handa við að leysa vefverkefni í lífefnafræði...úff...það var svakalega mikil vinna og ég kom heim gjörsamlega útkeyrð.
Bróðir Kela var í heimsókn og við skelltum okkur í bíó, planið var að fara á Bond kl. 20 og helst í Háskólabíó...Nei viti menn Bond er ekki sýnd í Háskóla bíó og heldur ekki í Kringlubíó og kl. 19:30 í Álfabakka...:evil: pirrandi.
Við fórum í staðinn á The Departed, hún var bara nokkuð góð, ég sofnaði alls ekki ótrúlegt en satt 8)

Á föstudaginn voru svo færnibúðir, þar lærum við að skoða sjúklinga, en æfum okkur reyndar bara hvort á öðru. Þetta var alveg ferlega skemmtilegt, við lærðum að gera spirometriu próf(öndunarpróf), skoða fólk vegna lungnasjúkdóma, hlusta lungun og svo lærðum við líka HNE skoðun.
Maður varð að vera duglegur að vippa sér í og úr bolnum, því við vorum alltaf að skoða og hlusta hvor aðra....maður verður víst að venjast því, þar sem það er slatti eftir af svona færnibúðum :$ Þetta var alls ekkert vandræðalegt enda voru 4 æðislegar stelpur með mér í hóp.
Við vorum allar ótrúlega pró með okkar eigin hlustunarpípur, ótrúlega gaman að prófa þetta manni finnst maður kunna...eitthvað :lol: kannski eitthvað smá.

Í háls, nefa-og eyrnaskoðuninni fengum við að sjá hitt og þetta, ein var með mjög stóra hálskirtla, ein með þreifanlega eitla, ein með mergtappa í hlutargöngunum(það var mjög töff). Það var líka mjög gaman að prófa svona opthalmoscope, það er klárlega á listanum yfir tæki sem mig langar í, ásamt svona höfuðljósi til að skoða í munn o.fl.

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 22:21:42 / halldorak

Törnin hafin

Jólaprófin eru að byrja á morgun, samt erum við enn þá í tímum :$ Þetta er um það bil það leiðinlegasta sem ég þarf að læra, eðlisfræði, ég sem hélt ég væri sloppin þegar stúdentsprófið í eðlisfræði í MR var komið í höfn...ohh alls ekki...en þetta er að minnsta kosti síðasti eðlisfræðiáfanginn, loksins :)

Það fer að styttast í jólafríið sem þýðir að það styttist líka í jólin :D Vá ég hef ekki hlakkað svona til jólanna í mörg ár!

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.11.2006 10:51:01 / halldorak

Útilokunar aðferðin...

Sá þessa frétt inn á Vísir.is og þar með get ég útilokað eina sérgreinina, kvensjúkdómalæknir í Þýskalandi ætla ég ekki að verða.
Er virkilega hægt að kenna lækninum um þetta ? Hvað varð um þá staðreynd að getnaðarvarnir eru aldrei meira en 98-99% öruggar, hvernig getur dómstóllinn líka vitað hvort að konan hafi ekki bara teygt sig og fjarlægt þetta sjálf 8| Ég á ekki orð, hvað er næst ?
Næst þegar ég fæ spurninguna ,,Hvaða sérgrein ætlarðu svo að leggja fyrir þig?" sem er ekki óalgeng spurning, verður svarið ,,Að minnsta kosti ekki kvensjúkdómalækningar í Þýskalandi!"

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 16:11:17 / halldorak

HJÁLP!!!

Hjálp ég er föst í óbyggðum, :cry: Ég var svo góð að ég ákvað að fara til Hafnar í Hornafirði og við komumst hingað nokkuð óhullt þrátt fyrir óhugnalegt flug, en héðan eigum við ekki að komast :( Vorum að fá að vita að það væri hreinlega of hvasst til að fljúga og við vitum EKKERT hvort við komumst heim, hvenær, hvernig eða neitt. Vitum heldur ekki hvar við eigum að vera þangað til við komumst aftur í mannabyggðir. Ef einhver veit um eitthvað skemmtilegt að gera á Höfn endilega bring it on !8|

-týnd og tröllum gefin


» 4 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 10:17:14 / halldorak

Jólaföndur

Í gær hittumst við bekkjarsysturnar og föndruðum. Það var alveg ótrúlega gaman, föndrið var ekki það flókið að hægt var að spjalla, sem er klárlega skilyrði fyrir skemmtilegu föndurkvöldi.
Viðfangsefni kvöldsins voru ljós kerti úr Ikea og svo ferlega sniðugar myndir sem átti að setja á kertin með því að nudda yfir myndina með íspinna-pinna, svokallaðar Rub-on myndir. Þetta gekk misvel hjá fólki...ég var nú bara nokkuð sátt við minn árangur, fall er fararheill, því ég var alveg að fara á límingunum í byrjun en svo kom þetta allt.
Þetta var ótrúlega skemmtilegt að breyta ljósu óspennandi kerti í ótrúlega fína jólaskreytingu :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Klukkan
Einangrun - Hrísey
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti